Sídasta blogg
Ég gleymdi í sídasta bloggi ad segja frá thví ad á fimmtudaginn sídasta fórum vid í heimsókn í bjórverksmidjuna SanMiguel. Thad var ágaett. Fyrst leiddi kona okkur í gegnum verksmidjuna og sagdi okkur frá ferlinu í engan vegin stuttu máli á spaensku! Ég og flestir skildum náttúrulega ekki baun. En eftir á fengum vid ad setjast nidur og fá smakk sem var ágaett.
Ég gleymdi líka ad segja frá thví ad á midvikudaginn sídasta tók ég mína fyrstu aefingu hérna úti (Elmu númer 2 og Tinnu númer 3). Vid hlupum eitthvad, gerdum svo ekta boot camp aefingar (sem Elma bjó til) á einhverjum róló hehehe. ÉG gerdi sko 120 situps (sjálfsviljug)!!! Ekkert smá stolt thar sem mér finnst situps ógedslegt. Ég uppskar svo thetta fína sár á rassinn;o( (thví ég gerdi situpsid á tartaninu á rólóinum.. tartan eins og er á hlaupabrautum).
Svo var thetta sem kom fram í sídasta bloggi um sólina kjaftaedi. Hún bara svona kemur og fer og yfirleitt er bara skítkalt.
Ég var ordin frekar uppiskroppa med lesefni svo ad ég fór ad leita mér ad bók á fimmtudaginn. Ég var ad leita ad einum ákvednum hofundi (og er reyndar enn). Ég fann frekar stóra bókabúd og spyr um hofundinn. Madurinn segir mér ad thau séu bara med hann á spaensku. Ég spyr thá hvort hann sé med einhverjar baekur á ensku. "A little" segir hann og bendir mér eitthvert. Thegar ég fer ad skoda úrvalid sé ég ad einu baekurnar á ensku eru nokkur eintok af somu bókinni! Bókinni um strákinn í rondóttu fotunum, gerist held ég í kring um seinni heimstyrjoldina. Thar sem ég hef svo oft ádur rekid augun í thessa bók ákvad ég ad taka thessu sem tákni og keypti hana. Ég fann svo adra bókabúd med ADEINS meira úrvali af enskum bókum (thá er ég ad tala um 3-4 titla í vidbót) og keypti adra bók thar. Svo nú aetti ég ad vera ordin gód.
Bíóferd
Vid ákvádum ad fara ekki til Madridar fyrr en á laugardags morgun, thví ef vid skildum ekki fá hostel gaetum vid farid heim um kvoldid. Í stadin ákvádum vid ad fara út ad borda á kínverskan, í bíó og kíkja svo nidur í bae. Á theim kínverska fékk ég mér eitthvad sem hét hákarlasúpa upp á flippid en thad var ekkert hákarlabragd af henni. Ég veit nú bara ekki hvad thetta var.
Vid maettum ad gomlum sid nett seinar í bíóid og vorum í hálfgerdu rugli. En ad lokum komumst vid inn í sal. Myndin var ad vísu adeins byrjud en thetta var spaensk grínmynd sem ég man ekki alveg hvad heitir lengur. Thótt ég hafi ekki skilid mikid í spaenskunni var hún snilld! Og svo var Elma líka dugleg vid ad túlka fyrir okkur Tinnu.
Eftir bíóid spjolludum vid svo adeins vid tvo stráka sem voru ad vinna tharna. Their hofdu einmitt verid ad hlaeja ad hvad vid vorum í miklu rugli á leidinni inn í sal fyrr um kvoldid. Vid maeltum okkur mót vid thá í baenum og fórum sjálfar nidur í bae. Thar hittum vid Maríu og rosalega dónalega fermingastráka (gaetu naestum hafad verid thad). Hver kennir thessum Spánverjum eiginlega mannasidi?
Seinna hittum vid strákana úr bíóinu og their budu okkur ad fara aftur í bíóid. Vid slógum til. Thar sátum vid í einhvern tíma og spjolludum spanglish. Strákarnir fengu ókeypis á barnum og budu okkur nammi og drykki. Sídan fórum vid "bak svids"!! Bara einhverjar stelpur og meira ad segja med bjórana med okkur! Ekkert smá tjillad. Vid sáum filmurnar, oll taekin, hvernig bíómyndirnar voru spiladar og sáum inn í bíósali thar sem myndir voru í gangi. Mér fannst alveg snilld ad sjá thetta! Ég náttúrulega ELSKA bíómyndir! Thegar sídasta sýningin kláradist og gestirnir voru farnir skelltum vid Indjana Jones á! Og "fórum í bíó" um hánótt, med nammi og drykki af barnum!! Hahahaha thetta var svo BEST!! Eitt thad skemmtilegasta sem ég hef gert!! og myndin var líka ágaet. (Mamma; vid possudum okkur! Engar áhyggjur, vid vitum alveg ad vid getum ekki treyst ókunnugum)
Eftir myndina fórum vid nidur í bae og svo heim um kl. 5. Vid aetludum einmitt ad taka rútu "naesta" morgun kl. 7:30.
Madrid
Kl. 7:22, eftir um 1 klst. svefn, maettum ég, Tinna og Elma eiturhardar upp á rútustod. En thví midur (eda kannski sem betur fer) var uppselt í thá rútu svo vid thurftum ad taka naestu rútu sem fór kl. 9:30. Vid keyptum mida, fórum heim, sváfum adeins lengur (sem betur fer er rútustodin vid hlidina á húsinu okkar) og maettum svo aftur "eldhressar" í 2 og 1/2 klst. rútuferd. Í Madrid fengum vid ódýrt og hreinlegt 3. manna herbergi med sameiginlegu badherbergi á fyrsta hostelinu sem vid sáum, sem var líka í midbaenum! Áhyggjurnar yfir ad fá hvergi inn voru semsagt ótharfar. Eftir thad fengum vid okkur gódan morgunmat í bakaríi og fórum svo ad versla! Ég versladi reyndar lítid, thví kortid mitt ákvad ad hafna mér gjorsamlega ákkurat í verslunarferdinni í Madrid og hardneitadi ad gefa mér svo mikid sem 20 evrur. Jaeja ég var med eitthvad cash og fékk lánad hjá stelpunum svo thetta allavega reddadist.
Um kvoldid maeltum vid okkur mót med hinum Íslendingunum í Madrid til ad fara á einhvern pub og horfa á Eurovision. Vid maettum enn og aftur nett seinar eftir ad hafa gripid med okkur McDonalds og KFC. Íslenska lagid med Eurobandinu var alveg eins og thad hefur alltaf verid en ég var hins vegar ad fíla Spaenska lagid í TAETLUR! Afgangurinn af kvoldinu var svo bara rólegheit hjá okkur. Vorum komnar upp á herbergi um 2! Vid thrjár! Og thad í Madrid! Kannski ástaedan sú ad thad kostadi inn á alla stadina, LEIM, og vid náttúrulega fátaekir námsmenn. Allavega vid nádum 9 klst. svefni sem er thad lengsta sem vid hofum nád sídan vid logdum af stad í thessa ferd (10. maí)!
Naesta morgun hunskudumst vid út taepum hálftíma eftir ad vid áttum ad vera farnar. Vid ákvádum ad taka thennan dag í ad skoda. Vid skodudum hollina, kirkjur, torg, garda og svo margt fleira. Vid fórum á listaverka-útimarkad og sáum fólk ad mála úti, skodudum túristabúdir, lobbudum endalaust og tókum fullt af myndum sem koma seinna. Madrid er falleg borg. Gamlar, skemmtilega hannadar byggingar útum allt, gardar thar sem trén eru klippt eftir fullkomnu munstri og fullt af fólki sem labbar SVO haegt! Ekkert stress sko..
Vid fórum medal annars inn í fallega kirkju thar sem reyndist vera messa. Thegar vid aetludum út aftur var komin demba (kemur á óvart..). Thá var ekki annad ad gera en ad fara aftur inn og fá okkur saeti. Vid fórum meira ad segja upp ad altarinu, thar sem einhver ókunnur eldri madur stakk upp í okkur einhverju sem trúadir kalla líkama Krists eda eitthvad svoleidis..
Nautaatid
Vid vorum einu sinni stoppadar og spurdar til vegar af tveim nett rugludum monnum sem vid fengum seinna ad vita ad voru ítalskar loggur í fríi. Vid vorum búnar ad labba tharna út um allt og med thetta fína kort af midbaenum svo vid sogdum theim skýrt og greinilega til vegar. Their sogdu okkur ad their vaeru ad fara á nautaat um kvoldid og einhvern vegin skildist okkur ad thad vaeri ókeypis. Nautaat er eitthvad sem okkur fannst vid allavega thurfa ad sjá einu sinni á aefinni svo vid ákvádum ad skella okkur líka um kvoldid og taka sídustu lest heim, thá sem fór kl. 10. Svo skildu leidir og vid héldum áfram ad skoda ég veit ekki hvad..
Vid maettum á slaginu 7 thar sem nautaatid átti ad byrja einmitt kl. 7 og rákumst aftur á strákan tvo sem vid hofdum sagt til vegar. Thad reyndist ekki vera ókeypis og thad var uppselt. En um 7:30 eftir mikid thras tókst okkur (eda strákunum frekar) ad redda okkur ollum 5 midum sem vid borgudum med glodu gedi. Vid máttum ekki fara inn á leikvanginn strax, urdum víst ad fara inn á milli nauta (nautin voru 6).
Fyrir utan var samt sjónvarp sem vid gátum séd hvad var ad gerast inni á vellinum. Thar var einmitt nautabani, sem okkur var seinna sagt ad vaeri gódur, ad leika listir sínar. Nei, nei, naer nautid honum ekki! Thad styngur hann í sitthvort innan vert laerid! Og tharna er thad utan í honum thar til adrir menn, svona hjálpar nautabanar, koma inn á og ná ad lokka thad til sín, frá saerda nautabananum. Svo er nautabaninn borinn út af og sást ekki meir!
Loksins thegar vid komumst inn (thurftum reyndar adeins ad nuda í dyravordunum svo vid fengjum ad sitja oll saman) var rosalega throngt og vid thurftum nánast ad sitja í klofinu á fólkinu fyrir aftan okkur og thau fyrir framan okkur sátu í klofinu á okkur! Thetta var nú allt saman bara voda kósí.
Nautaatid gekk thannig fyrir sig ad fyrst er nautid threytt. Thad eru nokkrir í thví. Thad er látid hlaupa smá og svo er thad stungid smávegis í bakid. Madur á hesti athugar reglulega hve treytt nautid er ordid. Nautid er látid rádast á hestinn, sem er ad sjálfsogdu vel brinvarinn (og madurinn líka) og med bundid fyrir augun. Thegar nautid er ordid haefilega threytt fer nautabaninn inná en hinir fara út. Prúdbúinn nautabaninn laetur nautid hlaupa í gegnum raudu skikkjuna sína voda flott alveg eins og í myndunum. Thegar hann faer svo taekifaeri til, drepur hann nautid med thví ad stinga thad í bakid, eda kannski frekar hálsinn. Nautid er svo dregid út af og á medan standa áhorfendur og klappa fyrir nautinu.
Sumum gaeti fundist thetta ógedslegt en thetta er náttúrulega gomul thjódar hefd svo madur verdur ad bera virdingu fyrir thví. Mér fannst sjálfri mjog óthaeginlegt ad sjá fyrsta nautid drepid med eigin augum.
Nautaatid kláradist um kl. 9:20. Thá fórum vid ad leita okkur ad leigubíl en sáum okkur til skelfingar ad fyrir utan "hringleikahúsid" var risa leigubílarod. Vid lobbudum thess vegna af stad í leit ad lausum leigubíl ad verda nett seinar. Loksins fundum vid hann úti á midri gotu á ljósum. Vid hlupum inn, tofdum adeins umferdina og brunudum upp á rútustod. Thar thurftum vid ad finna réttu rútuna sem tók sinn tíma og vorum komnar upp í rútu um 1 mín ádur en hún lagdi af stad. Alltaf gaman ad vera taepur..
Thar sem thetta blogg er ordid thad lengsta í heimi thá aetla ég ad haetta núna og geyma thad ad segja frá vínsmokkuninni og fyrirtaekjaheimsókninni í Leche sem vid fórum í med skólanum í gaer, thar til naest.
Bestu kvedjur,
Svava Lind
P.s. Faridi svo ad skrifa mér! thad er ordin heil eilífd sídan ég fékk póst sídast;o)