Á sveimi milli malbiksins og regnbogans

Svava Lind í Madrid

07.09.2008 19:45:19 / svavalind

Sumarið

..svo ég skrifi nú nokkrar línur um sumarið eftir Burgos áður en ég sný mér að haustinu hér í Madrid..

Ég vann hjá Línuhönnun í góðum hópi. Þar ber helst að nefna sumargrillið sem við sumarstarfsmennirnir skipulögðum, handboltaleiki, uppvask, ég lærði loksins eitthver heimilisstörf og svo var rosalega spennó að klifra í gluggakistunum þar.

Ég skellti mér á Þjóðhátíð með Tinnu, Elmu Dögg, Heiðu og Þóru frá laugardegi til mánudags. Þar ber hest að nefna humarveisluna á laugardagskvöldið, rosa fínt "húsaskjól", dans í dalnum alla nóttina, bolina okkar fínu sem við máluðum á sjálfar, byssuna og árina góðu og #%& rigninguna og leðjuna.

Ég lét Þjóðhátíð ekki nægja sem einu útihátíðina heldur mættum við Heiða  galvaskar(eftir mikið beil) í Hallgerssey, útilegu verkfræðinema og svo náttúrulega Túborg-/nýnemaútilega HR sem var hin mesta snilld. Öllum þessum þrem útilegum fylgdi þó annað hvort hellidemba eða skítakuldi.

Ég stundaði Boot camp af smá hálfkáki (Svava lata) en er auðvitað í hörkuformi eftir það.. ég er samt alls ekkert svo viss því ég átti alveg rosalega erfitt með að halda á pokunum alla 50 metrana heim úr búðinni áðan..

Ég hélt kveðjupartí handa sjálfri mér áður en ég fór;o). Ég og fjölskyldan mín púsluðum þessu saman. Við létum tjald út á pall, hitara, fullt af teppum og Jökull kom fyrir hljóðkerfi úti. Það var rautt þema því bæjarhátíðin Í túninu heima var ákkúrat þessa helgi og þá eru hverfin skreitt í ákveðnum litum, mitt hverfi fékk rauða litinn svo ég ákvað að nýta tækifærðið. Ég kom fyrir rauðum blöðrum og borðum en Jökull kom fyrir rauðum ljósum. Við buðum upp á bjór og snarl með. Rosa kósí og góð stemming.

Ég átti fleiri rosa góðar helgar og daga í sumar og slatta af hittingum og djömmum, þá annað hvort í faðmi fjölskyldurnar eða vinanna. Prufaði m.a. M13 byssuleik, sem var ágætt. Ég er pottþétt að gleyma einhverju roosalega skemmtilegu en hef það ekki lengra;o).

..þetta er meira svona bara upptalning fyrir mig til að rifja upp seinna svo ef þú hefur lesið þetta þá ertu búin að eyða tímanum þínum á heimskulegan hátt.. nei segi svona;o)..

Takk fyrir mig,
Svava Lind.


Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.