Á sveimi milli malbiksins og regnbogans

Svava Lind í Madrid

05.01.2007 18:20:53 / svavalind

bleik rós


Halldór Kiljan Laxness
Ég var byrjuð á heiftafullu bloggi um Halldór Laxness en þar sem ég vildi ekki fá alla þjóðina upp á móti mér þá ætla ég ekki að birta það hér. En hvað sjáiði eiginlega við hann? Honum líkaði ekki einu sinni við okkur (íslendinga). Skrifaði að við værum andfúl með meiru, flutti til útlanda, skrifaði á dönsku af öllum málum og svo þurfti hann endilega að skrifa 525 blaðsíðna bók um einhvern Bjart í Sumarhúsum sem finnst kvenkynið ennþá aumara en mannkynið og öllum finnst algjört listaverk, endurspegla líf svo margra og stríðið sem hann Bjartur háði við umhverfið gæti verið háð hvar sem er í veröldinni og bla bla bla. Jújú ágætis bók en afhverju gat hann ekki látið sér nægja 100 - 300 blaðsíður eins og venjulegir rithöfundar!? Dísess, þessi stórskáld maður.


Halldór Laxness á góðri stund
(eða bara að pósa)

Sveitaball?
Planið þessa hlegi var sveitaball á eina staðnum á Íslandi sem enn ríkir engin siðmenning . Í Skagafirði. Þar er mér sagt að fólk borði með höndunum og þvo sér ekki nema einu sinni á ári. Engar nýtísku landbúnaðarvélar hafa náð bólfestum þar, hvað þá tölvan. Fólkið lifir í sátt við umhverfið, syndir nakið í vötnum, klifrar á lendarskílunum í trjám og heldur kvöldvökur þar sem kveðin eru spennandi ævintýri (eitt erindi á kvöldi; 4 línur). Við myndum fara á bíl en þyrftum síðan að skipta yfir á hesta áður en við kæmum inn í ó-siðmenninguna þar sem engir vegir eru á Skagafirði. Ekkert verður þó úr þessari för. Ástæðan er ótti okkar við hina ógurlega frú Hálka. Frú Hálka er ægilegt skrímsli sem hæglega getur drepið 3 stúlkur sem ferðast einar í bíl á milli landshluta.

En að öðru
Einhvertíma sagði mér ung stúlka að hún ætlaði að skipta út myndinni af honum Jón Sigurðsyni, sem príðir 500 krónu seðil okkar íslendinga, fyrir mynd af sjálfri sér. Ég spurði afhverju hún hefði ekki frekar mynd af sér á 5000 króna seðlinum. Þá svaraði hún að fátæka fólkið yrði nú líka að fá að sjá hana.

Takk fyrir mig
-Svava Lind


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 11:33:38 / svavalind

Blessuð sé minning hans

Ég er í fyrsta eðlisfræði 103 tímanum mínum. Ég á erfitt með að einbeita mér, þessvegna blogga ég. Ástæðan eru fréttir sem ég fékk í byrjun tímans; kennarinn bað okkur um að hafa þögn í smá stund, til minningar um strák sem útskrifaðist úr skólanum í fyrra. Hann var reyndar enginn strákur heldur orðinn fullorðinn. Hann hafði látist stuttu fyrir jól; hátíðar ljóss og friðar. Ég man eftir honum síðan snemma í skólanum. Fyrst vissi ég ekki hvort þessi stóri maður væri kennari eða nemandi. Ég þekkti hann ekki mikið en hann var mikill persónuleiki að mér fannst og ég bar mikla virðingu fyrir honum eins og flestir aðrir meðlimir skólans; kennarar og nemendur, að ég held. Ég hef eflaust engan rétt til að tjá mig um þetta en ég geri það nú samt.

Blessuð sé minning hans.


 


» 0 hafa sagt sína skoðun